Færslur

Sýnir færslur frá desember 5, 2004
Jóla, jóla Var örmagna úr þreytu í gær enda að vinna bæði miðvikudags- og fimmtudagskvöld. Ætlaði að leggja mig í gærdag en gat ekki sofnað og sofnaði ekki í neitt fyrr en seint og um síðir. Gat samt ekki sofið langt fram eftir degi. Fúlt. Núna um helgina ætla ég að skrifa upp helgileik og búa til spurningar á ensku úr Forrest Gump og Mississippi Burning. Eða taka til fyrir jólin og setja upp jólaskraut. Í staðinn fyrir þetta rambaði ég út um allan bæ í dag í leit að bíl. Já, ég er að hugsa um að yngja upp bílaeignina. Bíllinn minn verður lögráða um áramótin. Fann engan bíl sem mig langaði í svo ég keypti bara Blindsker. Það var fínt. Vil samt endilega að músík myndböndin hans Bubba verði gefin út á disk.Langar að sukka í fortíðarþrá. Ekki fortíðarljóma, ojojoj. Gerði heiðarlega tilraun til að fara í Hagkaup en þar sem mér leiðist mannfjöldi og og umferðastappa á bílastæðum þá keyrði ég bara fram hjá. Langar líka í breiðtjaldssjónvarp.Svo auðvelt að fa neyslulán núna og velta þj
Mynd
Man einhver eftir þessu?
Ég kenni alveg jafnmikið á mánudögum og fimmtudögum en samt finnst mér fimmtudagarnir miklu lengri. Merkilegt.
Tónleikarnir voru bara ágætir í gær. Ég ar auðvitað í gæslu og var mest utan dyra að reka reykjandi fólk af skólalóðinni. Mammúth og Brain Police stóðu upp úr. Strákar og stelpur í Mammúth sem ég var mjög ánægð með. Svo frétti ég að söngvarinn er líklega ungfrú Pollock. Ekki verra auðvitað. Minnir að Raskatið hafi einhvern tíma verið að tala um þetta og hún sé dóttir Danny. Brain Police voru fínir. Gamaldags Rock'n'Roll og síðhærðir skeggjaðir gaurar. Söngvarinn og trommarinn voru með þvílík tilþrif. Söngvarinn fór m.a.s. úr bolnum í síðasta laginu. Hann er með risa-tattú á bakinu. Rokktaugin í gamla fólkinu í gæslunni fór óneitanlega aðeins að titra.
Gvöööð minn góóóður! Endajaxlinn er að drepa mig! Ég hélt að ófétið væri vaxið upp en tekur sig svo til og fær vaxtakipp og er mig lifandi að drepa. Kippa honum úr! Med det samme! Þarf samr fyrst að fara á tónleikana í Fellahelli, fullt af frægum hljómsveitum, Brain Police, Mammúth, Gay Parad og einhverjar fleiri. (Ég þekki þessar hljómsveitir ekki neitt. Orðin of gömul.)
Í kirkjugarði Hér hvílast þeir, sem þreyttir göngu luku, í þagnar brag. Ég minnist tveggja handa, er hár mitt struku einn horfinn dag. Ó, guðir, þér, sem okkur örlög vefið svo undarleg. Það misstu allir allt, sem þeim var gefið, og einnig ég. Og ég, sem drykklangt drúpi höfði yfir dauðans ró, hvort er ég heldur hann, sem eftir lifir, eða hinn, sem dó? Steinn Steinarr Já, ég var að hugsa um vin minn, hjartkæran.
Mynd
What a marvelous person! You are the splendid Christmas tree! You are a spirited person who almost always in a great mood. Your smiles and laughter are some things that people usually look forward to in you. You are someone who is full of energy and ready for a good time. Most likely you are a social butterfly. All of these characteristics make you a beautiful person inside and out. People just really enjoy to be around you. Merry Christmas =) What Christmas Figure Are You? brought to you by Quizilla Fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá niðurstöðuna var að ég hlyti að hafa fært eitthvað í stílinn einhvers staðar en sá svo að allar niðurstöðurnar eru voða sætar. Oh..
Var að lesa um draumabúðina hjá Þórdísi áðan. Langar í framhaldi að koma þeirri skoðun minni á framfæri að ef bjór og léttvín væri ódýrara og aðgengilegra þá myndi drykkjumenning okkar gjörbreytast. Þessi geðveiku helgarfyllerí myndu hætta og fólk færi meira út í það að sötra gott rauðvín með kvöldmatnum sínum. Ef við skoðum glæpatölur á Íslandi þá er ég nokkuð sannfærð (en ekki viss því ég hef ekki skoðað glæpatölur á Íslandi) að flest allir glæpir eru framdir um helgar á fylleríi. Bara mín skoðun á málinu.
Nei! Nei! Nei! Trúi þessu ekki! Þá erum við aftur orðin aumingjastétt. ,,Já, kennararæflarnir gefast alltaf upp að lokum." Urrr...
Gerði ekkert um helgina, nema sofa auðvitað. Fann samt bók uppi í hillu, Dumasarfélagið . Hún er ágæt og minnir dálítið á Da Vinci lykilinn. Nema hvað að mér finnst málfarið á henni heldur uppskrúfað og leiðinlegt. Veit ekki hvort það á að vera svona eða hvort það sé kristinn R. Ólafsson þýðandi sem er svona leiðinlegur. Keypti samt sem áður jólaseríur sem ég þarf að troða upp í glugga. Ég reyndi þetta fyrir tveimur árum og þá setti ég seriuna alla á skakk og skjön. Ég er svo ómöguleg í öllu heimilishaldi að það er bara ekki fyndið. Er að bíða eftir úrslitum úr atkvæðagreiðslunni miklu. Þau eiga að koma á milli 17:00 0g 18:00. Fékk tvær vondar fréttir í dag. Þetta er ekki gott. Alls ekki nógu gott.
Var með Silfur Egils sem undirspil þegar ég greini einhvern snilling segja að helmingur þjóðarinnar sé á Prósak og það dugi að éta þorskalýsi. Hann er ægilega hneykslaður á þessu sem og því að börn séu látin taka Ritalin. Prósak er ákveðinn brautryðjandi sem gerði mörgum gott en hafði aukaverkanir. Það orðið gríðarleg þróun á þunglyndislyfjum þar sem aukaverkunum var eytt og Prósak nánast dottið upp fyrir. Ég vann á geðdeild í 3 ár og ég horfði á lyfin virka. Það kom inn fólk sem var svipbrigðalaust með hægar hreyfingar og leið djöfullega og gekk út tiltölulega hresst. Lyf virka ekki nema það sé unnið með þeim. Það að éta pillur og halda áfram að liggja inni í rúmi virkar að sjálfsögðu ekki. Lyfin gefa kraftinn til að rísa upp úr rúminu en einstaklingurinn sjálfur verður auðvitað að fara á fætur. Persónulega efast ég um að hálf þjóðin sé á þunglyndislyfjum en miðað við skammdegið sem við búin við finnst mér ekkert óeðlilegt að mörgum líði illa á sálinni, sérstaklega yfir vetrarmánuðin
Það er nú bara eitthvað að þegar maður er kominn í rúmið fyrir 10 á laugardagskvöldi. Ég gat bara ekki með nokkru móti haldið mér vakandi og varð að fórna Ali. Það er ekki svo gott að ég vakni þá eldsnemma og nýtt daginn í einhver ósköp. Nei, nei, var að vakna.